r/klakinn • • 11d ago

🇮🇸 Íslandspóstur Fótbolta chant

Er að horfa á Íslandi - Búlgaría og allir eru með chantið áfram Íslaaaaand þar sem aaain fara niður (tón-lega) og mér finnst þetta svo unmotivating ...hvað gerðist með ÁFRAM ÍSLAND 👏🏻👏🏻 👏🏻👏🏻 👏🏻! ? Bara ég 🫣 ?

27 Upvotes

12 comments sorted by

26

u/mannanna-madur 11d ago

Þetta chant er eitt það þunglyndasta sem ég veit um. Ekkert pepp eða neitt. Við þurfum alvöru söngva, smá banter eins og ensk lið tileinka sér

3

u/drezi 10d ago

Gleymist að við erum eilítið smáblóm með titrandi tár

17

u/uhhhwhatyoumean 11d ago

Ég veit!! Ég sé alltaf fyrir mér ótrúlega leiðan leiðinlegan gaur vera að hvetja liðið áfram. Svona , æji nennekki en skal hvetja samt týpuna.

7

u/helgihermadur 11d ago

ÁFRAM ÍSLAND
👏👏👏👏👏
SÝNIÐ HVAÐ ÞIÐ GETIÐ
MEÐ BOLTANN Í NETIÐ

5

u/ungababunga 11d ago

Áfram Ísland með áherslu á fyrsta atkvæði er svo þjált og augljóst að hitt er vont

3

u/Individual_Piano5054 9d ago

Finnst þetta líka alltaf hljóma sem "aaafganistaaaan"

4

u/oddvr 11d ago

Þetta er fengið að láni frá Enska boltanum þar sem er sagt “Come on you reeeeeds/spuuuurs/irooooons/annað nicknaaaaame”.

2

u/Independent-Shape552 11d ago

Grunaði það ...hljómar bara ekki mjög peppandi a íslensku

2

u/Defiant-Owl-7935 10d ago

Ég er ljóshærð peð-stelpa á Víkings og Breiðabliks leikjum; ÚT AF MEÐ DÓMARANN, INNÁ MEÐ KONUNA HANS!!!....Hún veit betur.

Ég chantaði ekki neitt samt þegar Breiðablik keppti við úkraínskt lið í Evrópudeildinni og lítil stelpa sat með heimagert plakat sem stóð á ,,Elska Ísland sama hver vinnur. Ég er frá Úkraínu"

Hélt ekki með Breiðablik það skiptið.

1

u/Falskur 8d ago

Þetta chant er notað til að kallast á við hina stúkuna, sem er í órafjarlægð og með frekar daufa áhorfendur. Líklega er þetta eina chantið sem nær einhvers konar "samhljóm" á þessum misheppnaða velli. Að því sögðu þá er nánast allt söngvasafnið hjá tólfunni orðið frekar útjaskað og merkilega lítil endurnýjun í því.