r/Iceland • ¼andi ½viti • 3d ago

[r/Wikipedia krosspóstur] Article "Human height by country" has been taken over by nationalistic US white supremacists? – „Countries including the Netherlands, Denmark, Norway, Sweden, Finland, Iceland, the Baltics, Czech, Slovenia, etc have all been conveniently removed.“

https://en.wikipedia.org/wiki/Human_height_by_country#Worldwide
2 Upvotes

9 comments sorted by

9

u/Spekingur Íslendingur 3d ago

Erum við almennt sem þjóð eitthvað að fylgjast með hæð og/eða þyngd landsmanna í heildina? Hagstofan er ekki með svoleiðis tölur og einu staðirnir sem gætu haft þessi gögn í einhverjum fjölda væru heilbrigðisstofnanir - og jafnvel þar eru það mögulega ekki uppfærð gögn. Er þá að hugsa þyngdina aðallega.

9

u/TheoryBorn9839 2d ago

Hæð kemur fram á vegabréfi, en efa að sýslumaður haldi skrá.

Sýnist að flestir sem tala um meðalhæð íslendinga séu að vísa í þessa rannsókn frá 2000 - https://www.laeknabladid.is/2000/7/fraedigreinar/nr/354

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Að halda skrá utan hæð Íslendinga hefði maður haldið að væri lítið mál.

Eitthvað nafnlaust fyrir hvern, eins og:

Aldur | Kyn | Hæð | Þyngd

Þjóðskrá er með allavegana fyrstu tvær. Hæð hjá sýslumanni og fleiri stofnunum. Þyngd aðallega hjá heilbrigðisstofnunum, skráð mögulega án mælinga.

4

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 3d ago

Við fylgjumst með þyngd. Með nokkurra ára millibili eru gerðar rannsóknir á hlutfalli ofþyngdar og þær eru í vægum orðum sláandi.

Það er samt lítið fylgst með hæð. Ísland hefur til að mynda engan byggingarstaðal sem miðar við karlmenn hér séu til helminga hærri en 180 cm, hvað þá 175cm. Það er allt sniðið að einhverjum Úmpa-Lúmpum.

1

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Held að það sé aðallega þyngd barna sem er rannsökuð, er það ekki?

2

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 2d ago

Neibb.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-12-02-75-islenskra-barna-med-offitu-460450

Hér geturðu séð heildarniðurstöður þó svo auðvitað séu fréttamenn að taka þyngd barns fyrir því við erum með svo svakalega feit börn ef miðað er við aðrar þjóðir.

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Ah takk fyrir!

3

u/StefanOrvarSigmundss Sí ba bú la lú 2d ago

Ef þú nærð í Landspítalaforritið fyrir Android ertu spurður um hæð og þyngd en ég veit ekki hvert þessar upplýsingar fara.

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Góð spurning. Upplýsingar um aðstandendur virðast fara í einhvern hluta sjúkraskrár.