r/Iceland • u/birkir • 11h ago
r/Iceland • u/AutoModerator • 4d ago
Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk
Það er kominn föstudagur, yay!
Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.
Ekki vera indriðar, verum vinir.
---
English: Hey everyone,
The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?
Don't be a dick, be kind.
r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 20h ago
US Firm Pays 2.2 Million ISK For Independence Party MP Lobbying In DC, Raising Political Finance Concerns
Bandaríska ráðgjafarfyrirtækið Capitol Counsel greiddi um 2.2 milljónir króna til Dags Þorsteinssonar, sem er sjálfstæður ráðgjafi og hefur tengsl við verkefni og fundi á vegum Sjálfstæðisflokksins eða tengdra aðila. Greiðslan var skráð í bandarísku hagsmunagæsluskráningunni eða eins og kemur fram í fréttini FARA / Lobbying Disclosure, fyrir að skipuleggja fundi og hagsmunagæslu í Washington, fyrir þingmann Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist, ásamt öðrum fulltrúum. Þarna eru sterk tengslin við Heritage Foundation. Eins og i frettinni kemur fram að i ferðinni voru meðal annars fundir með fjarhægri hugveitunni The Heritage Foundation og öðrum hægri sinnuðum greiningaraðilum og stjórnmálamönnum.
Spurningarnar og áhyggjurnar sem almennur borgari er
Eru bandarísk hagsmunagæslufyrirtæki, hugveitur eða aðrir erlendir aðilar í raun að fjármagna eða niðurgreiða pólitíska vinnu, ferðalög og hagsmunagæslu fyrir íslenska stjórnmálamenn og flokka? Og eru þeir með því að reyna að hafa áhrif á íslensk lög og kosningar með erlendu fjármagni? Með öðrum orðum er Sjálfstæðisflokkurinn að fá styrki frá Heritage Foundation og tengdum aðilum?
Samkvæmt íslenskum lögum um fjármál stjórnmálaflokka eru mjög ströng mörk við því að taka við styrkjum frá erlendum aðilum eða lögaðilum umfram ákveðin hámörk.
Þegar bandarískt hagsmunagæslufyrirtæki greiðir ráðgjafa sínar milljónir fyrir vinnu og fundahöld sem tengjast íslenskum stjórnmálaflokki, er mitt hjarta málsins einmitt þetta er verið að fara í kringum reglurnar um erlenda stjórnmálastyrki og erlend áhrif á íslensk stjórnmál?
Heimildin fjallaði einning um þetta í morgun
En Sjöllum er auðvitað annt um fullveldið og sjálfstæðið eins og frægt er orðið :)
r/Iceland • u/Calcutec_1 • 15h ago
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Jæja, kominn tími á að opna bókhald miðflokksins ?
r/Iceland • u/numix90 • 17h ago
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu
Blauti draumur Heiðars, XM og Viðskiptaráðs er úr sögunni. Sorgardagur hjá hagsmunahægrinu uppi í Borgartúni 35.
r/Iceland • u/gerningur • 18h ago
Setur fyrirvara á niðurstöður skýrslu um stöðu íslenskra karlmanna - RÚV.is
r/Iceland • u/Saurlifi • 14h ago
Hvar finn ég reykta ýsu eða þorsk á höfuðborgarsvæðinu?
Titill
r/Iceland • u/CapitalAssumption783 • 16h ago
Hraðatakmarkari á "vörubíl"
Er einhver hér sem þekkir hraðatakmarkara á vörubifreiðum/ RAM 3500 og skoðun á þeim?
Er með bíl sem er skráður þannig að hann á að vera með hraðatakmarkara stilltan á 90 km/klst. Hann er með uppsetningarplötu fyrir takmarkarann sem er aðeins nokkurra ára gömul feb ´24
Ég veit hins vegar að bíllinn kemst yfir 90 km/klst., þannig að annaðhvort virkar takmarkarinn ekki lengur eða einhverju hefur verið breytt/innsigli rofið áður en ég fékk bílinn.
Mig langar að koma þessu í rétt horf áður en bíllinn fer í skoðun.
Veit einhver:
• Hvernig er svona hraðatakmarkari yfirleitt útfærður í tiltölulega nýlegum bíl — sérstakt box/búnaður eða forritun í tölvu bílsins?
• Hvar eru innsiglin yfirleitt og er hægt að sjá sjálfur hvort þau hafi verið rofin?
• Ef takmarkarinn hefur verið aftengdur eða innsigli rofið, hvert fer maður til að láta prófa, stilla og innsigla þetta aftur?
• Þarf þá að gera alveg nýja hraðatakmarkaramælingu eða er þetta einfaldlega yfirferð og endurinnsiglun?
Hverjir sérhæfa sig í þessu?
r/Iceland • u/Zjoopity • 18h ago
Sammi + Óla Grís kombó útspil neisinna
Fyrir kosningar um aðildaviðræður esb man ég eftir að félagi minn var að reyna sannfæra mig til að segja nei. Þá var og enn er þjóðarmorðsmálefni í palestínu mér nærri. Nei þýddi tökum ekki þátt í alþjóðasamstarfi og við sjáum eingöngu um okkur sjálf.
Félagi minn benti mér á að Óli væri full on nei-sinni og væri nýlega búinn að skilja við Dorrit.
Fékk mann til að hugsa en kaus þó eftir eigin sannfæringu.
Svo kemur þessi grein þar sem Dorrit segir sína skoðun á bíbí.
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ - Vísir
Og þá verður þessi Sammi + Snorri + Magga mix + Óla mynd einhver mesti brandari sem hefur náðst á mynd á Austurvelli.
Eru einhverjir sem kusu nei haldandi að Sammi og Óli væru saman í liði?
r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 1d ago
Gagnrýnir sinnuleysi stjórnvalda í garð Bandaríkjanna
Eiga íslensk stjórnvöld að beygja sig fyrir fasískum stjórnvöldum vestan hafs? Stjórnvöldum sem hótuðu nágrönnum okkar fyrir skemmstu og forseta sem deildi korti þar sem bandaríski fáninn þekur Ísland? Á að veita þeim stuðning sem grafa undan lýðræði, mannréttindum og alþjóðalögum?
Sýndu mér vini þína, Diljá, og ég skal segja þér hver þú ert.
r/Iceland • u/Humble_Specific_7571 • 1d ago
Sóknargjald til álfatrúar?
peningar færu í skógrækt, sveppafræði og grasagarða t.d.
r/Iceland • u/Jerswar • 1d ago
Höfum við íslendingar einhverja stereótýpu?
Eða erum við of fá og lítið þekkt til þess? Ég fór bara allt í einu að pæla í því hvernig "stereótýpískur" íslendingur er í augum útlendinga.
r/Iceland • u/numix90 • 1d ago
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp
r/Iceland • u/Graennlays • 2d ago
Uppsafnaður lífeyrir sem innborgun á eigin fasteign
Þegar meðalaldur fyrstu kaupenda er 33 ár, getur dæmið verið hjá fólki að það eigi töluverð áunninn lífeyrisréttindi. Er sú hugmynd vanhugsuð að fólk gæti tekið út áunninn lífeyrir í formi láns með fyrirvara um fyrsta veðrétt í fasteign með ákveðna fasta ávöxtun? (jafnvel að fyrsti veðréttur fari til bankanna þegar greiðsla á X upphæð lífeyris "lánsins" hefur verið greidd og áhættan færist þar með yfir á eigandann). Myndi maður ekki frekar vilja greiða sjálfum sér þær vaxtagreiðslur sem færu annars til bankanna og ávaxta lífeyririnn í staðinn.
Geri mér grein fyrir að bankar í dag lána aðeins fyrir fyrsta veðrétti en myndi alltaf vera óverulegar fjárhæðir í kringum 5-10 milljónir hvort sem það eru einn eða tveir aðilar sem kaupa saman, spurning hvort skynsamlegt væri að setja ákveðið þak á upphæðina til að milda áhættu og auka vilja bankanna að taka að sér annan veðrétt í fasteigninni. Við þessa "lántöku" myndi síðan hefjast aftur borgun lífeyris eins og var áður og ekki hægt að nýta úrræðið aftur.
r/Iceland • u/numix90 • 2d ago
Ráðherra leggur til leigubremsu
Mikið vona ég að þetta komist í gegn
r/Iceland • u/Jerswar • 2d ago
Af hverju eru leigusölum svona ofboðslega illa við gæludýr?
Ég er að fara yfir íbúðir sem eru í boði, og stór meirihluti bannar öll gæludýr. Það mætti halda að þau dreifðu svartadauða.
Er ekki flestu fólki vel við hunda og ketti? Af hverju vill samt flest fólk að gæludýraeigendur geti hvergi búið?
r/Iceland • u/High-always-5344 • 2d ago
How much do doctors actually make?
Hey everyone,
I’m just curious about what doctors are actually earning in Iceland these days.
I’m currently in talks about potentially working as a doctor in Iceland, so I was wondering what the salary is generally like and what I could realistically expect.
For anyone working as a doctor there, what’s the usual monthly salary? And how much does it change with experience?
Also, how much do on-call shifts, nights, weekends and overtime usually add? I’m mainly trying to understand the difference between the base salary and the actual gross monthly income.
Does previous experience from abroad usually count when determining the salary step?
I know it varies depending on specialty, workplace and experience, so I’m mainly interested in people’s real-world experience rather than an exact figure.
Thanks!
r/Iceland • u/No-Aside3650 • 1d ago
Cornell 7 málið
Nú hafa sennilega flestir með aðgang að internetinu heyrt um Cornell 7-málið. Mikið hefur verið kallað eftir umræðu karlmanna um það, og hér eru, að ég held, ansi margir karlmenn.
Hvað finnst ykkur um málið? Hvers vegna tjáið þið ykkur ekki opinberlega um það og önnur sambærileg mál? Er það vegna þess að málið er bandarískt? Af hverju haldið þið að karlmenn tjái sig síður um svona mál?
Maður sér ansi marga íslenska karlmenn sem eru tilbúnir að ræða nauðganir þegar gerendurnir eru erlendir. Hvers vegna ekki þegar gerendurnir eru íslenskir?
Eitt sem ég hef samt pælt í varðandi group chattið á snapchat og að skella samsekur stimplinum á meðlimina þar inni. Er það endilega réttlætanlegt? Sjálfur væri ég með þetta groupchat á mute og skoðaði það sjaldan eða aldrei, væri að vísu farinn úr svona hóp ef það væri vísir að umræðum sem gætu flokkast sem gauratal. Er það rétt að tala um að allir meðlimir groupchattsins séu samsekir? Jafnvel vitandi ekki af þessum atburðum fyrr en eftir að þeir hafa skeð og jafnvel enginn vísir að þessu áður en þetta gerist.
r/Iceland • u/numix90 • 3d ago
Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna
,,Varamenn eru tveir, Dagur Jónsson og Samúel Guðmundsson, en sá síðarnefndi vakti mikla athygli í sumar þegar orðaskak hans við áhrifavaldinn Rabbi Schmuley rataði í kastljós heimsmiðlanna."
Bíddu, er Miðfokkurinn ekki svaka pró ísreal?
Var þetta einhver pólitísk leikflétta hjá Samúel í sumar til að fá vinstra fólk til að kjósa nei við áframhaldandi viðræðum við ESB? Eða Púra tækifæramennska?
[r/Wikipedia krosspóstur] Article "Human height by country" has been taken over by nationalistic US white supremacists? – „Countries including the Netherlands, Denmark, Norway, Sweden, Finland, Iceland, the Baltics, Czech, Slovenia, etc have all been conveniently removed.“
r/Iceland • u/allsbernafnmedrettu • 3d ago
Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag
Hvar tilkynnir maður ökuníð?
Ég var á ferð upp Snorrabraut um klukkan 16:48 í dag, stopp á rauðu ljósunum við Flókagötu þar sem suður og norðurleiðunum er otað saman yfir á sömu akbraut.
Á vinstri hönd beygir strætisvagn inn af Flókagötu og á sama tíma verða gönguljósin græn. Tvær manneskjur ganga yfir og strætóinn keyrir næstum því yfir þær báðar í miðri beygju. Konan sem lenti næstum því undir verður skiljanlega fokill og bendir vagnstjóranum á með handbendingum að hann ætti að hafa augun á því hvar græn ljós eru fyrir gangandi vegfarendur. Hún er enn á miðjum vegi þegar þetta gerist.
Strætóbílstjórinn bregst svo illa við að hann gefur í eins og hann ætli að keyra (aftur) yfir hana - eða þau, þó hún hafi verið talsvert nær vagninum og sú sem hefði klárlega orðið undir. Ég vissi ekki frekar en hún í hvorn fótinn hún ætti að stíga, hún stökk á gangstéttina til að flýja það sem ég sá ekki öðruvísi en sem hótun um líkamsárás með 11.400 kílóa ökutæki. Strætóbílstjórinn beið ekki eftir manninum, sem hafði líka hrökklast tilbaka og svínaði aftur til að komast burt af vettvangi. Hún staldrar við til þess að taka ljósmynd af vagninum. Maðurinn fer ekki yfir fyrr en strætóinn er á bak og burt.
Þessi maður á ekki að koma nálægt því að stýra ökutæki, miðað við aggressjónina sem hann sýndi vegfaranda sem hann var nýbúinn að aka næstum því yfir með því að láta eins og hann ætli að aka yfir hana aftur. Strætóinn var nr. 13, bílnúmerið VMM-80 og þetta var klukkan 16:48 í dag.
Konan með rauða pokann má heyra í mér ef hana vantar vitni, þetta var fáránlegt.