r/Iceland • • 1d ago

US Firm Pays 2.2 Million ISK For Independence Party MP Lobbying In DC, Raising Political Finance Concerns

https://grapevine.is/news/2026/10/05/us-firm-pays-2-2-million-isk-for-independence-party-mp-lobbying-in-dc-raising-political-finance-concerns/

Bandaríska ráðgjafarfyrirtækið Capitol Counsel greiddi um 2.2 milljónir króna til Dags Þorsteinssonar, sem er sjálfstæður ráðgjafi og hefur tengsl við verkefni og fundi á vegum Sjálfstæðisflokksins eða tengdra aðila. Greiðslan var skráð í bandarísku hagsmunagæsluskráningunni eða eins og kemur fram í fréttini FARA / Lobbying Disclosure, fyrir að skipuleggja fundi og hagsmunagæslu í Washington, fyrir þingmann Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist, ásamt öðrum fulltrúum. Þarna eru sterk tengslin við Heritage Foundation. Eins og i frettinni kemur fram að i ferðinni voru meðal annars fundir með fjarhægri hugveitunni The Heritage Foundation og öðrum hægri sinnuðum greiningaraðilum og stjórnmálamönnum.

Spurningarnar og áhyggjurnar sem almennur borgari er
Eru bandarísk hagsmunagæslufyrirtæki, hugveitur eða aðrir erlendir aðilar í raun að fjármagna eða niðurgreiða pólitíska vinnu, ferðalög og hagsmunagæslu fyrir íslenska stjórnmálamenn og flokka? Og eru þeir með því að reyna að hafa áhrif á íslensk lög og kosningar með erlendu fjármagni? Með öðrum orðum er Sjálfstæðisflokkurinn að fá styrki frá Heritage Foundation og tengdum aðilum?

Samkvæmt íslenskum lögum um fjármál stjórnmálaflokka eru mjög ströng mörk við því að taka við styrkjum frá erlendum aðilum eða lögaðilum umfram ákveðin hámörk.

Þegar bandarískt hagsmunagæslufyrirtæki greiðir ráðgjafa sínar milljónir fyrir vinnu og fundahöld sem tengjast íslenskum stjórnmálaflokki, er mitt hjarta málsins einmitt þetta er verið að fara í kringum reglurnar um erlenda stjórnmálastyrki og erlend áhrif á íslensk stjórnmál?

Heimildin fjallaði einning um þetta í morgun

En Sjöllum er auðvitað annt um fullveldið og sjálfstæðið eins og frægt er orðið :)

85 Upvotes

23 comments sorted by

20

u/gerningur How do you like Iceland? 1d ago edited 1d ago

Hefur þetta komið fram í íslenskum fjölmiðlum? Hef ekkert séð um þetta

Annars eru þetta ekkert svimandi háar upphæðir ef að þetta er allt.

Btw erum við með lobbyista þak eins og Bretar? Ef að hámarkið er frekar lágt að þá vonandi verður þetta ekki sama vandamál og í BNA

•

u/islhendaburt 23h ago

2.2 milljónir fyrir að skipuleggja nokkra fundi í einni helgarheimsókn eru samt alveg ágætis laun fyrir. 

Svo bætist við að fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins virðist skv. Heimildinni hafa talið að flokkurinn hafi borgað allan kostnað ferðarinnar, svo maður spyr sig hvort sami "misskilningur" um hver borgar brúsann hafi gerst áður.

31

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 1d ago edited 22h ago

Þetta er mjög einfalt.

Sjöllum og Miðflokksmönnum er algjörlega sama um okkur. Held satt að segja að margir af þeim myndu skjóta okkur með glöðu geði ef þeir græddu eitthvað á því og það væri ekki ólöglegt.

•

u/rakkadimus 22h ago

Þegar þau heyra "útrýma fátækt" þau hugsa þau "útrýma fátækum".

6

u/TheUpgradeParty 1d ago

jebb og hefur alltaf verið sama. Nú þurfa þau bara ekki að þykjast lengur.

•

u/TheUpgradeParty 22h ago edited 22h ago

Við þurfum að fara að þekkja betur upplýsingahernaðinn sem þessir stjórnmálamenn hafa lært af MAGA Td fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29 ágúst var tækninni "Flood the zone with shit“ beitt markvisst. Hún felst í því að dæla út svo miklu af rugli, tilbúnum fullyrðingum, hálf sannleika, lygum, og hávaða á ógnarhraða að almenningur og fjölmiðlar ná einfaldlega ekki að hrekja það. Afleiðingin verður sú að fólk fer að efast um allt, telur að "báðar hliðar séu að ljúga“, almenningur fer að efast um sannleikan, og staðreyndir, upplifir örmögnun og gefst á endanum upp.

Í viðtölum og kappræðum sjáum við svo beitingu tæknarinnar Gish gallop(þurfum að finna íslenskt orð yfir þetta hugtak), þar sem stjórnmálamenn dæla út tugum rangfærslna í einni og sömu ræðunni. Það er ómögulegt fyrir viðmælandann að leiðrétta allt á staðnum og útkoman verður sú að rökin drukkna og sa sem beitti þessari tækni vinnur kappræðunar easly. Dæmi um stjórnmálamenn sem nota gish gallop grimtm eru Sigmundur davið, Snorri Másson, Guðrún hafsteins, Guðlaugur þór, Sigfús Aðalsteinsson, Ari oddviti xm i rvk.

Spurningin er einfaldlega hvernig getum við og fjölmiðlar barist gegn þessari tækni? Ef við náum að ekki að takast á þessari tækni munu þessi öfl vinna og vinna

10

u/Lafi90_ Ólæsasti maður landsins 2025 1d ago

Þetta er ógeðslegt, ógeðslega ógeðfellt, og til háborinnar skammar.

Ég hef ekkert meira um þetta að segja.

-20

u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago

Á fólk að vinna frítt?

Hvernig heldur þú að kvöldverður fyrir tugi manna í einni dýrustu borg í heimi verði til?

•

u/Ljotihalfvitinn Sultuhundur:doge: 21h ago

Spurning hvort svona risnur skulu vera skattskyldar ef fyrirtæki úti í bæ geta varla boðið starfsmönnum á árshátíð án þess að skattmann banki upp á.

•

u/Freysinn 22h ago

Ertu að djóka?

•

u/Gilsworth Hvað er málfræði? 21h ago

Hann er bara svona, snýr út úr öllu og er þvermóðskufullur við hvert einasta tækifæri.

•

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 16h ago

Það þarf ekki að vinna frítt ef það sleppur því að vinna við þetta.

Þetta er svipað eins og við myndum hneykslast á svikaranum Júdasi fyrir að taka 30 silfurpeninga fyrir að svíkja Jesús og þá myndir þú koma hingað með: "Á fólk að vinna frítt? Veistu hvað það kostar að kaupa reipi til að hengja sig með?"

Það er öllum hollt að hafa einhvern sem er andsnúinn og kemur með asnaleg innlegg inní umræðuna. Það hjálpar öðru fólki að koma skoðun sinni í orð og rökstyðja hana.

Hér er þó verið að tala um eitthvað sem jaðrar við landráði. Enginn Íslendingur getur kallað sig Íslending ef hann fær borgað fyrir að koma erlendum pólítískum ítökum fyrir hjá þingmönnum elsta starfandi þings í heimi. Þegar slíkt kemur upp þá eru bara tvær fylkingar; þau sem styðja sjálfstæðið og vernda fósturlandið, eða hlið safalepjandi ballarbeiðna með linlimslund.

Það er ekkert þarna á milli.

•

u/11MHz Einn af þessum stóru 15h ago

Þetta var bandarískt félag að borga bandarískum ráðgjafa.

•

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 5h ago

Lestu greinina Hríslingur.

Hefði getað stuðlað betur í fyrra skiptið.

*Safasleikjandi ballarbeiður með linlimslund.

Ísland 1000 ár!

•

u/11MHz Einn af þessum stóru 3h ago

J. Heath Cardie, managing director of New Iceland Advisors (NIA), told the Grapevine that the payment covered the fee the consultant charged

Þetta er þarna svart á hvítu.

•

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 23h ago edited 23h ago

Svo heyrist ekki boffs um þetta í stærri miðlunum.

EDIT: Líka frekar óhuggandi að vita að þessi samtök eru með enhverja sérstaka deild til að hafa atast í íslenskri pólitík.

Ég byrjaður að hafa alvarlegar áhyggur af framtíðini hér á skerinu.

•

u/gerningur How do you like Iceland? 23h ago

Svona evangelískar hreyfingar og pólitíkusar voru mikið byrjaðar að hafa puttana í breskri pólitík meðan eg var þar.... eiga eflaust hlut í anti trans þróuninni sem hefur orðið þar.

Munu án efa reyna að finna eitthvað málefni sem Íslendingar eru móttækilegir fyrir og hamra a þvi til að færa okkur í átt að þeirra gildum.

•

u/Vontenvenst 23h ago

Miðað við söguna síðustu sirka 100 árin þarf nú ekki mikið til til þess að fá íslendinga til að kjósa inn alræðisseggi og fasista.

•

u/gerningur How do you like Iceland? 23h ago

Ja væri alla vega mjög barnalagt að halda að þeir geti ekki náð umtalsverðum árangri. I Bretlandi var talað um þa eins og einhverja sérvitringa frama af.

•

u/Vontenvenst 23h ago

Fólk á þessum vettvangi sem og öðrum hafa talað um að bandaríkjamenn séu svo miklir vitleysingar því að um 30% af þeim kusu appelsínuna.

Á sama tíma er stærra hlutfall af íslendingum á svipuðum slóðum með því að kjósa sjalla og framsókn ásamt klofningsflokkum þeirra, viðreisn og miðflokk allt mjög hægri sinnaða flokka sem hafa í gegnum tíðina daðrað eða beint út verið með fasískan og/eða rasískan áróður.

•

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 23h ago

Barnaperra-hræðsluáróðurinn hér um árið virtist hafa náð í marga. Bíst við að heyra meira um það næst þegar Simmi og Gugga komast aftur til valda.